Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af fyrirtækinu þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór með stolti. Við bjóðum upp spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsmanna. Sjálfbærnistefnan okkar er metnaðarfull og stikar leiðina að betra samfélagi og er starfsfólk hvatt til að taka þátt í að fylgja henni eftir, sýna frumkvæði og vinna að sífelldum úrbótum. Ef þú vilt hafa áhrif, hvetjum við þig til að slá til!
Við leitum að vaktstjóra fyrir framleiðslu Víking brugghúss
Helstu verkefni
Ábyrgð á að fylgja daglegu skipulagi og framkvæmd framleiðsluáætlunar
Verkefnastýring á vakt
Áfylling í samræmi við áfylliplan
Stjórnun framleiðsluvéla, hafa eftirlit með gæðum framleiðslunnar
Ábyrgð á því að fylgja verkferlum og tryggja öryggi
Breytingar á vélum þegar skipt er á milli hráefna eða umbúða
Þátttaka í reglubundnu viðhaldi á vélum og tækjum
Bilanagreiningar / bilanaleit í samvinnu við tæknideild
Hæfniskröfur
Iðnmenntun eða sambærileg menntun er æskileg eða að minnsta kosti 3ja ára starfseynsla í sambærilegu starfi við framleiðsluvélar
Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
Almenn tölvukunnátta
Jákvætt viðhorf og geta til að vinna undir álagi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg
Unnið er á vöktum
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Við viljum fá sem fjölbreyttastar umsóknir frá fólki af öllum kynjum og af ólíkum bakgrunni. Hafðu samband við okkur ef þú ert efins.
Allir einstaklingar sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvattir til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun